Al-Andalus: Menningarferð til Suður Spánar 17.-24. apríl 2027 með Þóri Jónssyni Hraundal

Við fáum að kynnast ríkri menningararfleið Máranna í Andalúsíu með Þóri Jónssyni Hraundal. Múslimar réðu ríkjum á stórum svæðum á Íberíuskaga frá 711–1492. Það má víða sjá minjar um veldi þeirra, sérstaklega í Andalúsíu í borgum eins og Granada, Córdoba, Málaga og Sevilla.

Ferðin kostar :kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar kr. aukalega.

Nánari ferðalýsing hér fyrir neðan:

Ferðalýsing

Farastjóri: 

Fararstjóri í ferðinni er Þórir Jónsson Hraundal. Þórir hefur kennt sögu Mið-Austurlanda og sögu múslima á Íberíuskaga við Háskóla Íslands um árabil og árið 2025 kom út eftir hann bókin Al-Andalus: Saga múslima á Íberíuskaga (Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur). Hann kenndi einnig námskeið sama efnis við Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2026. Þórir bjó í Salamanca á Spáni 1998–2001 þar sem hann nam semitísk fræði, arabísku, hebresku og önnur mál, og hefur ferðast vítt og breitt um landið síðasta aldarfjórðung eða svo.

Dagur 1: 17. apríl – Til Málaga

Ferðumst til Málaga, fljúgum í beinu flugi með Icelandair kl. 11:00  og lendum í Málaga kl. 17:45. 

Við komuna til Malaga bíður okkar rúta sem keyrir okkur á hótelið okkar Catalonia Malaga (eða sambærilegt) þar sem við gistum fyrstu tvær næturnar. 

Dagur 2: 18. apríl – Málaga og Alcazaba

Eftir morgunverð heimsækjum við Alcazaba. Alcazaba er eitt merkasta sögulega kennileiti Málaga og sannkölluð perla frá tímum Máranna á Spáni. Þetta glæsilega virki og hallarsamstæða var reist á 11. öld og stendur í hlíðinni fyrir ofan borgina, þar sem það hefur stórkostlegt útsýni yfir höfnina, Miðjarðarhafið og litrík þök borgarinnar.

Frjáls tími restina af deginum til að skoða sig um í Málaga.

 (Morgunverður innifalinn)

Dagur 3: 19. apríl – Ronda og Sveilla

Eftir morgunverð keyrum við til Ronda, sem er einn af fallegustu bæjum Andalúsíu, sem er þekktur fyrir djúpa gljúfrið El Tajo sem skiptir bænum í tvennt, sögulegan arkitektúr og stórbrotið útsýni.

Við höldum ferðinni áfram til Sevilla innritum okkur á hótelið okkar Zenit Sevilla (eða sambærilegt) þar sem við gistum næstu tvær næturnar. Frjáls tími restina af deginum.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 4: 20. apríl – Giralda, Torre de Oro og (sigling á Guadalquivir)

Í dag heimsækjum við meðal annars Giralda og Torre del Oro.

Giralda er eitt þekktasta kennileiti Sevilla og glæsilegt dæmi um samspil íslamskrar og kristinnar byggingarlistar. Turninn var upphaflega minaretta mosku frá 12. öld en varð síðar hluti af dómkirkju Sevilla. Frá toppi turnsins er stórkostlegt útsýni yfir borgina og fallegar götur hennar.

Torre del Oro, eða Gullturninn, er 36 metra hár sögulegur turn í Sevilla, byggður af Almohad-ættinni á 12. öld. Turninn var hluti af borgarmúrnum á tímum Máranna og gegndi mikilvægu hlutverki við að verja ána Guadalquivir og stjórna skipaumferð. Þung keðja lá undir vatni frá turninum yfir á hinn árbakkann til að hindra óvinaskip í að sigla upp ána. Í dag er Torre del Oro eitt þekktasta kennileiti Sevilla og minnisvarði um ríka sögu borgarinnar.

(Seinnipartinn förum við í siglingu á Guadalquivier. )

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 5: 21. apríl -Cordoba, Madina al-Zahra og moskan

Eftir morgunverður skráum við okkur út af hótelinu og höldum til Granada. Á leiðinni til Granada heimsækjum við Cordoba þar sem við heimsækjum Madina al-Zahra, glæsilegu borg Kalífanna og moskuna í Cordoba

Medina Azahara, rétt utan við Córdoba, er fornleifasvæði sem geymir leifar af glæsilegri hallaborg sem byggð var á 10. öld af kalífanum Abd al-Rahman III. Borgin var tákn um vald og auðlegð kalífadæmisins í Córdoba og þar má enn sjá leifar af höllum, móttökuhúsum og görðum sem bera vitni um einstaka byggingarlist og menningarblóma Andalúsíu á tímum múslima. Medina Azahara er á heimsminjaskrá UNESCO.

Við komuna til Granada innritum við okkur á hótelið okkar Barcelo Carmen (eða sambærilegt) þar sem við gistum seinustu 3 næturnar.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 6: 22. apríl – Frjáls dagur í Granada 

Í dag er frjáls dagur í Granada

Granada er oft þar sem arabískur menningararfur og spænsk hefð mætast. Borgin er einkum þekkt fyrir hina stórkostlegu Alhambra-hallarsamstæðu, þröngar steinlagðar götur og fallegar byggingar sem minna á aldalanga sögu Máranna. Með Sierra Nevada-fjöllin í bakgrunni er Granada borg sem heillar með sögu sinni, menningu og einstöku andrúmslofti.

Hægt er að fara í göngtúr um Albaicín, gamla márahverfið með hlykkjóttum miðaldagötum, hvítkölkuðu húsum og stórkostlegu útsýni yfir Alhambra-höllina.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 7:  23. apríl – Granada, Alhambra og Generalife

Eftir morgunverð heimsækjum við Alhambra og Generalife.

Alhambra er ein glæsilegasta sögulega bygging Spánar og sannkölluð perla Granada. Þessi stórbrotna hallarsamstæða var reist á tímum Máranna og heillar með íburðarmiklum höllum, fögrum skreytingum, útskornum bogum og fallegum görðum.

Generalife var sumarhöll emíranna, umkringd gróskumiklum görðum, gosbrunnum og fallegum vatnsrennslum. Þaðan er einnig stórkostlegt útsýni yfir Granada og fjöllin í kring. Saman veita Alhambra og Generalife einstaka innsýn í ríka sögu og menningararf Andalúsíu.

(Morgunverður innifalinn )

Dagur 8: 24. apríl

Frjáls tími um morguninn. Rétt eftir hádegi keyrum við á flugvöllinn í Málaga. Við fljúgum með Icelandair kl. 18:45 og lendum aftur á Íslandi kl. 21:35


(Morgunverður innifalinn)

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í verði: 

  • Flug frá Íslandi til Málaga með Icelandair og aftur heim
  • Innritaður farangur (23kg) og handfarangur
  • Allar rúturferðir í loftkældum rútum
  • Íslensk fararstjórn
  • Enskumælandi innlendur leiðsögumaður í heimsóknum
  • 7 gistinætur samkvæmt ferðalýsingu
  • Morgunverður alla daga
  • Aðgangseyrir að öllum stöðum sem við heimsækjum
  • Ferðir til og frá hótelum og flugvelli (ekki á Íslandi)

Ekki innifalið:

  • Þjórfé
  • Valfrjálsar aukaferðir