Ferðalýsing
Farastjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Þórir Jónsson Hraundal. Þórir hefur kennt sögu Mið-Austurlanda og sögu múslima á Íberíuskaga við Háskóla Íslands um árabil og árið 2025 kom út eftir hann bókin Al-Andalus: Saga múslima á Íberíuskaga (Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur). Hann kenndi einnig námskeið sama efnis við Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2026. Þórir bjó í Salamanca á Spáni 1998–2001 þar sem hann nam semitísk fræði, arabísku, hebresku og önnur mál, og hefur ferðast vítt og breitt um landið síðasta aldarfjórðung eða svo.
Dagur 1: 17. apríl – Beint flug til Málaga
Ferðumst til Málaga, fljúgum í beinu flugi með Icelandair kl. 11:00 og lendum í Málaga kl. 17:45.
Við komuna til Malaga bíður okkar rúta sem keyrir okkur á hótelið okkar Hotel Soho Urban 4* city centre (eða sambærilegt) þar sem við gistum fyrstu tvær næturnar.
Dagur 2: 18. apríl – Málaga og Alcazaba
Eftir morgunverð heimsækjum við Alcazaba. Alcazaba er eitt merkasta sögulega kennileiti Málaga og sannkölluð perla frá tímum múslima á Spáni. Þetta glæsilega virki og hallarsamstæða var reist á 11. öld og stendur í hlíðinni fyrir ofan borgina, þar sem það hefur stórkostlegt útsýni yfir höfnina, Miðjarðarhafið og litrík þök borgarinnar.

Frjáls tími restina af deginum til að skoða sig um í Málaga.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 3: 19. apríl – Ronda og Sevilla
Eftir morgunverð keyrum við til Ronda, eins fallegasta bæjar Andalúsíu, þar sem hvítkölkuð húsin standa tignarlega á klettabrúninni fyrir ofan hitt stórbrotna El Tajo-gljúfur.
Við njótum leiðsagnar í gönguferð um fallegan og sögulegan miðbæ bæjarins og skoðum helstu kennileiti hans. Þar á meðal eru hin stórbrotna Puente Nuevo-brú, heillandi torg, hefðbundnar andalúsískar götur og glæsilega útsýnisstaði.

Við höldum ferðinni áfram til Sevilla innritum okkur á hótelið okkar Hotel Luciano Sevilla 4* city centre (eða sambærilegt) þar sem við gistum næstu tvær næturnar.
Frjáls tími restina af deginum, fararstjóri mælir með gómsætum tapas stöðum í nágrenni hótelsins okkar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: 20. apríl – Giralda og Torre de Oro
Í dag heimsækjum við meðal annars Giralda og Torre del Oro.
La Giralda er eitt þekktasta kennileiti Sevilla og glæsilegt dæmi um samspil íslamskrar og kristinnar byggingarlistar. Turninn var upphaflega bænaturn mosku frá 12. öld en varð síðar hluti af dómkirkju Sevilla. Frá toppi turnsins er stórkostlegt útsýni yfir borgina og fallegar götur hennar.

Torre del Oro, eða Gullturninn, er 36 metra hár sögulegur turn í Sevilla, byggður af Almohad-ættinni á 12. öld. Turninn var hluti af borgarmúrnum á tímum múslima og gegndi mikilvægu hlutverki við að verja ána Guadalquivir og stjórna skipaumferð. Þung keðja lá undir vatni frá turninum yfir á hinn árbakkann til að hindra óvinaskip í að sigla upp ána. Í dag er Torre del Oro eitt þekktasta kennileiti Sevilla og minnisvarði um ríka sögu borgarinnar.
Frjáls tími restina af deginum og þau sem vilja geta til dæmis farið í siglingu á Guadalquivier, eða fengið sér tapas á einum eða fleirum af fjölmörgum stöðum í nágrenni hótelsins okkar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 5: 21. apríl -Cordoba, Madina al-Zahra og moskan
Eftir morgunverður skráum við okkur út af hótelinu og höldum til Granada. Á leiðinni til Granada heimsækjum við Cordoba þar sem við heimsækjum Madina al-Zahra, hina glæsilegu borg kalífanna og svo moskuna í Cordoba
Medina Azahara, rétt utan við Córdoba, er fornleifasvæði sem geymir leifar af glæsilegri hallarborg sem byggð var á 10. öld af kalífanum Abd al-Rahman III. Borgin var tákn um vald og auðlegð kalífadæmisins í Córdoba og þar má enn sjá leifar af höllum, móttökuhúsum og görðum sem bera vitni um einstaka byggingarlist og menningarblóma Andalúsíu á tímum múslima. Medina Azahara er á heimsminjaskrá UNESCO.

Við heimsækjum því næst fallegu moskuna í Granada, Mezquita-Catedral de Córdoba, sem er eitt merkasta sögulega og byggingarlistalega kennileiti Spánar. Hún er einstakur minnisvarði um sögu Andalúsíu þar sem íslamskur og kristinn menningararfur mætast í sömu byggingu. Árið 1236, eftir að kristnir náðu borginni á sitt vald, var moskunni breytt í kristna kirkju. Á 16. öld var reist stór dómkirkja inni í miðju moskunnar.

Við moskuna er fallegur appelsínugarður, Patio de los Naranjos, þar sem appelsínutré og gosbrunnar og skapa einstaklega friðsælt umhverfi.
Við höldum því næst ferðalaginu áfram til Granada. Við komuna til Granada innritum við okkur á hótelið okkar Hotel NH selection Victoria Granada 4* (eða sambærilegt) þar sem við gistum í þrjár nætur.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 6: 22. apríl – Granada: frjáls tími, Albaicín og Flamenco sýning
Í dag er frjáls dagur í Granada. Granada er borg þar sem arabískur menningararfur og spænsk hefð mætast. Borgin er einkum þekkt fyrir hina stórkostlegu Alhambra-hallarsamstæðu, þröngar steinlagðar götur og fallegar byggingar sem minna á aldalanga sögu múslimanna. Með Sierra Nevada-fjöllin í bakgrunni er Granada borg sem heillar með sögu sinni, menningu og einstöku andrúmslofti.
Í dag bíður Þórir upp á göngutúr um Albaicín fyrir þau sem vilja, þar sem gengið er um gamla múslimahverfið með hlykkjóttum miðaldagötum, hvítkölkuðu húsum og stórkostlegu útsýni yfir Alhambra-höllina.
Um kvöldið förum við á flamenco-sýningu í Sacromonte.

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 7: 23. apríl – Granada: Alhambra og Generalife
Eftir morgunverð heimsækjum við Alhambra og Generalife.

Alhambra er ein glæsilegasta sögulega bygging Spánar og sannkölluð perla Granada. Múslimar reistu þetta mannvirki á 13. og þar má sjá íburðarmiklar hallir og virki, fágaða skreytilist og fallega garða.
Generalife var sumarhöll emíranna, umkringd gróskumiklum görðum, gosbrunnum og fallegum vatnsrennslum. Þaðan er einnig stórkostlegt útsýni yfir Granada og fjöllin í kring. Saman veita Alhambra og Generalife einstaka innsýn í ríka sögu og menningararf múslima í Andalúsíu.
(Morgunverður innifalinn )
Dagur 8: 24. apríl
Frjáls tími um morguninn. Í kringum hádegi keyrum við á flugvöllinn í Málaga. Við fljúgum með Icelandair kl. 18:45 og lendum aftur á Íslandi kl. 21:35
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Ferðin kostar: 429.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 138.000 kr. aukalega.
Innifalið í verði:
- Flug frá Íslandi til Málaga með Icelandair og aftur heim
- Innritaður farangur (23kg) og handfarangur
- Allar rúturferðir í loftkældum rútum
- Íslensk fararstjórn
- Enskumælandi innlendur leiðsögumaður í heimsóknum
- 7 gistinætur samkvæmt ferðalýsingu
- Morgunverður alla daga
- Aðgangseyrir að öllum stöðum sem við heimsækjum
- Ferðir til og frá hótelum og flugvelli (ekki á Íslandi)
Ekki innifalið:
- Þjórfé
- Valfrjálsar aukaferðir
Mikilvægar upplýsingar:
- Gott er að þáttakendur séu ágætlega á sig komin til göngu í ferðinni.





