18. febrúar: Luxor – Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
19.900 kr.
18. febrúar: Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
Lagt af stað eldsnemma morguns (í kringum kl. 5:00) og farið með rútu til Lúxor en ferð hvora leið er um 4,5 klukkutímar með 1 stoppi.
Dalur konunganna er einn þekktasti og mikilvægasti fornleifastaður Egyptalands og er staðsettur á vesturbakka Nílar gengt borginni Lúxor en þar stóð áður hin forna borg Þeba. Í dalnum hafa fundist að minnsta kosti 65 grafhýsi og er staðurinn á heimsminjaskrá UNESCO. Þekktustu grafirnar eru meðal annars gröf Tútankamon sem fannst árið 1922 og stór og mikilfengleg grafhýsi Ramses II og Ramses III.
Heimsótt eru 3 grafhýsi. Einnig geta þau sem vilja, heimsótt grafhýsi Tútankamon (Grafhýsi Tútankamon er ekki innifalið, leiðsögumaður aðstoðar við kaup á miða á staðnum.)
Þá er El-Karnak musterið skoðað en það er stærsta trúarlega mannvirki sem reist hefur verið.
Áætluð heimkoma til Hurgada er um 20:30
Verð á mann er: 19.900 kr
Innifalið í ferðinni:
- Íslensk fararstjórn
- Innlendur leiðsögumaður
- Aðgangur að Dal Konunganna
- Heimsókn í 3 grafhýsi
- Aðgangur að El Karnak
- Sótt á hótel, keyrt til Luxor og í Luxor og aftur á hótelið
Ekki innifalið
- Hádegisverður
- Grafhýsi Tútankamún (Hægt að kaupa á staðnum)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
27 in stock



