Uppselt: 16. febrúar: Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Musem (GEM)
Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Musem (GEM)
Þann 16. febrúar – uppselt:
Búið er að bæta við aukaferð: https://kleopatratours.is/product/dagsferd-kairo-februar-2027/
Flogið er frá Hurgada snemma morguns til Kaíró.
Byrjað er á því að heimsækja píramídana og sfinxinn í Giza.

Þá er Stóra-Egyptalandssafnið (Grand Egyptian Museum, GEM) skoðað. Við höfum tækifæri til þess að borða hádegismat á safninu.

Skoðum þetta stórkostlega safn með leiðsögn en það nær yfir 500.000 fermetra og skartar mestu gimsteinum Egyptalands eins og gullgrímu Tutankhamun en tveir sýningarsalir helgaðir þeim 5,398 minjum sem fundust í gröf hans. Þá er Sólarskip Khufu til sýnis á safninu en það er meira en 4.000 ára gamalt tréskip sem hefur sérstaka álmu, en það flutti konungana til eftirlífsins samkvæmt egypskri goðafræði. Safnið sýnir óendanlegt magn merkum hlutum sem gefa sýn inn í menningarheim sem var á hátindi fyrir meira en 3.000 árum. Þar á meðal er 11 metra há og 83 tonna stytta af Ramses mikla sem tekur á móti gestum í aðalsal safnsins. Flogið er frá Kaíró í kringum 19:30 til baka til Hurghada
Verð á mann er: 64.900 kr
Innifalið í ferðinni:
- Sótt á hótel og keyrt á flugvöllinn
- Innanlandsflug frá Hurghada til Kaíró og Kaíró til Hurghada
- Flugvallagjöld og skattar
- Íslensk fararstjórn
- Innlendur egyptalandsfræðingur
- Aðgangur að Grand Egyptian Museum (GEM)
Ekki innifalið
- Hádegisverður
- Að fara inn í píramída (Hægt að kaupa á staðnum)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum




