Skilmálar og persónuverndarstefna

1. Greiðsla ferða

Staðfestingargjald ferða er óafturkræft. 

Greiðsla ferða skiptast í 3 hluta. Staðfestingargjald greiðast við bókun, 40% af fullu verði ferðarinnar greiðist 12 vikum fyrir brottför, og lokagreiðsla greiðist 6 vikum fyrir brottför.

Ef ekki hefur verið gengið frá greiðslu fyrir tilsettan tíma áskilur Kleopatratours sér rétt til að afbóka þá þjónustu sem bókuð er án nokkurrar endurgreiðslu á því sem greitt hefur verið inn á þjónustuna. 

Greiðsludreifing

Boðið er upp á greiðsludreifingu í samstarfi við VISA (Valitor) og MASTERCARD (Borgun). Lántökukostnaður er mismunandi eftir fyrirtækjum. Hafið samband við Kleopatratours ef þið óskið eftir greiðsludreifingu.

2. Afpöntun ferðar og endurgreiðsla

Ef viðskiptavinur afpantar ferð hjá Kleopatra tours meira en 4 mánuðum fyrir brottför fæst allt endurgreitt nema staðfestingargjald. Afbókun þarf að berast skriflega. 

Ef afbókað er milli 4 mánuðum til 3 mánuðum fyrir brottför heldur Kleopatratours eftir 65% af verði ferðar.

Ef afbókað er minna en 3 mánuðum fyrir brottför er engin endurgreiðsla.

Afbókun þarf að berast skriflega.

Aflýsing ferðar og breyting á ferðaáætlun.

Ferðaskrifstofunni er heimilt að aflýsa ferð, ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg. Í sérferðum gildir að lágmarksþátttaka er 12 manns nema annað sé sérstaklega tilgreint í auglýsingum eða sölubæklingum. Ef ferð er aflýst er öll ferðin endurgreidd innan 14 daga.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og geta breyst. 

Vegna atburða og aðstæðna sem telja má ófyrirséða og þess eðlis að ferðaskrifstofan getur á engan hátt haft áhrif á atburðarás, né afleiðingar tengdum þeim, ber ferðaskrifstofan enga ábyrgð. Í slíkum tilvikum er ferðaskrifstofunni heimilt að breyta eða aflýsa ferðinni með öllu. 

3. Tryggingar

Við bendum viðskiptavinum á að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í ferð. Við hvetjum farþega til að kynna sér hvaða tryggingar eru innifaldar í greiðslukorti sínu og/eða heimilistryggingu. Athugið að þessar tryggingar eru mismunandi eftir tegund greiðslukorts, kynnið ykkur vel skilmála þeirra, sem má fá hjá útgefanda greiðslukortsins.  

Einnig er hægt er að sækja um sjúkratryggingakort hjá Sjúkratryggingum Íslands – http://www.sjukra.is/ Fyrir ferðir utan Evrópu er hægt að sækja um sérstaka tryggingaryfirlýsingu til einstaklinga sem tryggðir eru hér á landi en hyggjast dveljast í löndum sem eru utan EES svæðisins. Þetta á við um ferðamenn, námsmenn og ríkisborgara utan EES. Viðkomandi þarf samt sem áður að greiða fullt verð fyrir þjónustuna og skila svo inn umsókn um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar ásamt frumritum reikninga og staðfestingu á greiðslu til Sjúkratrygginga. Tryggingayfirlýsingar er hægt að prenta út á mínum síðum í réttindagátt (https://rg.sjukra.is/Account/Login.aspx (Opnast í nýjum vafraglugga) ).

4. Nöfn í bókunum

Nöfn í bókunum og tengiliðaupplýsingar eru á ábyrgð farþega, og skulu vera eins og á vegabréfi. 

5 Vegabréf og áritanir

 Gætið vel að gildistíma vegabréfs fyrir brottför. Það er alfarið á ábyrgð farþega að afla sér upplýsinga um og tryggja sér þau ferðaskilríki og áritanir sem þarf að hafa meðferðis fyrir það land sem ferðast er til. Áður en ferð hefst þarf að kanna hvort vegabréfsáritunar sé þörf eða annara skjala. Upplýsingar er að finna á heimasíðu Utanríkisráðuneytisins ( sjá link hér neðar). Ef um millilendingar er að ræða þarf einnig að athuga áritun á millilendingarstað. Gæta skal vel að gildistíma vegabréfs fyrir brottför. Athuga þarf einnig hvort vegabréf sé gilt nógu lengi því ákveðin lönd krefjast þess að vegabréf sé gilt í allt að 6 mánuði frá þeim degi sem landið er yfirgefið. Alltaf skal ferðast með vegabréf, jafnvel þegar ferðast er innan Schengen svæðis

6. Geymsla verðmæta

 Við mælum eindregið með að viðskiptavinir geymi alls ekki peninga né annað verðmæti á herbergjum heldur nýti sér öryggishólf hótelanna, sem eru yfirleitt í gestamóttöku. Einstaka hótel bjóða öryggisskáp í herbergjum. Hvorki hótelin né Kleopatratours eru ábyrg ef verðmæti tapast úr herbergjum.

7. Séróskir

Ferðaskrifstofan er umboðsaðili gististaða og hefur ekki yfirráð yfir gistirými. Yfirmenn gististaðanna sjá um niðurröðun farþega í herbergi. Starfsfólk ferðaskrifstofunnar getur ekki ábyrgst að séróskum farþega sé fullnægt umfram það sem getið er í gistilýsingum og verðlista. 

Persónuverndarstefna Kleopatratours ehf.

Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Kleopatratours ehf (hér eftir nefnt „fyrirtækið“) er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu þessari kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn.

Einnig er hér gerð grein fyrir því hvaða persónuupplýsingum við föfnum um þig þegar þú ferð inn á vefsíðu okkar (www.kleopatratours.is), auk þess hvernig við förum með persónuupplýsingarnar þínar.

Markmiðið með þessari yfirlýsingu um persónuvernd er að gefa þér skýra mynd af því hvernig við notum persónuupplýsingar sem þúveitir, áhgerslu okkar á vernd upplýsinganna og réttindum þínum, og valkostum að því er varðar að hafa stjórn á og vernd á persónuupplýsingum þínum.

Allar persónuupplýsingar eru geymdar á öruggum netþjóni. Við kunnum að breyta þessari personuverndarstefnu, þ.m.t. að gera efnsilegar breytingar í tengslum vi ðvafrakökur (e. cookies) sem við notum.

Ábyrgð

Kleopatratours ehf Kt: 6404191480, vinnur með eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem fyrirtækið safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Fyrirtækið hefur aðsetur að Bræðraborgarstíg 5, 101 Reykjavík, og er ábyrgðaraðili þeirra persónuuplýsingar sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er að senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuuplýsinga á netfangið kleopatratours@kleopatratours.is.

Í persónuvernarsefnu þessari er vísað til gildandi íslenskra laga um persónuvernd og almennrar persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins („GDPR“) eða hvers kyns löggjafar, eða löggjafar sem kemur í stað ofangreindra laga og/eða reglugerðar.

Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera kleift að persónugreina hann. Ekki er átt við nafnlaus gögn, en það eru upplýsingar sem persónugerinandi gögn hafa verið fjarlægð úr.

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

Kleopatratours ehf safnar upplýsingum um viðskiptavini, starfsmenn og birgja sem fyrirækinu er skylt að varveita í samræmi við lög og reglur, samninga og samþykki hinsskráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila.

Kleopatratours ehf safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum, og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.

Kleopatratours ehf safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuuplýsingar er líklegt að Kleopatratours ehf geti ekki veitt viðkomandi aðila þjónustu eða selt aðgang að vörum sem í boði eru.

Upplýsingar um börn

Við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum um börn undir 13 ára aldri, eða lágmarksaldir í viðkomandi lögsögu. Ef við verðum þess áskynja að við höfum óvart safnað persónuupplýsingum um börn undir 13 ára aldri munum við gera ráðstafanir til að eyða upplýsingunum eins fljótt og auðið er, nema okkur sé skylt að geyma þær samkvæmt gildandi lögum.

Öruggi gagna og persónuuplýsinga

Kleopatratours ehf nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuuplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.

Gögn viðskiptavina

Gagnavinnsla Kleopatratours ehf er staðsett hérlendis og hýst hjá gagnaveri í Írlandi, ásamt því að vera hýst annarstaðar erlendis í ákveðjum tilfellum. Þjónustuveitendur sem Kleopatratours notar til vinnslu, þar sem persónuupplýsingar þínar koma fyrir, kunna að vera staðsettir í löndum innan og utan Evrópusambandsins (ESB) og Evrópska efnahagssvæðisins (EEA). Við tryggjum að þessir þjónustuveitendur vinna úr persónuupplýsingum í samræmi við löggjöf um persónuvernd (GDPR) og tryggja nægilegt gagnaverndarstig, jafnvel þótt persónuupplýsingar séu fluttar til lands utan EES sem er ekki með fullnægjandi gagnavernd samkvæmt ákvörðun framkvæmdarstjórnar ESB. Flutningur persónuupplýsingar til annarra viðtakenda er ekki gerð nema þar sem við erum skuldbundin til að gera það samkvæmt lögum. Til að fá nánari upplýsingar um viðeigandi varúðarráðstafanir varðandi alþjóðlega gagnaflutninginn eða afrit af þeim, vinsamlegast hafið samband við okkur í gegnum kleopatratours@kleopatratours.is

Varðveislutímabil

Persónuupplýsingar sem gefnar eru upp á vefsíðu okkar verða aðeins vistaðar þar til tilgangnum sem þær voru meðhöldlaðar fyrir hefur verið fullnægt. Að því marki sem varðveislutími er samkvæmt viðskiptalögum og skattalögum gæti varðveislutími fyrir tilteklnar upplýsingar verið allt að 8 ár. Varðveislutímabil gæti einnig breyst vegna lögmætra hagsmuna okkar (t.d. til að tryggja öryggi ganga, að koma í veg fyrir misnotkun eða lögsækja vegna afbrota).

Það sem við höfum ekki stjórn á

Vefsíður þriðja aðila: Á vef okkar kunna að vera tenglar í og frá vefsíðum samstarfaðila, auglýsenda og annarra þriðju aðila. Ef þú smellir á tengil í enhverja af þessum vefsíðum skaltu hafa í huga að um þær gilda aðrar persónuverndarreglur og að við tökum enga ábyrgð á viðkomandi reglum. Viinsamlegast kynntu þér þessar reglur áður en þú sendir persónuupplýsingar gegnum viðkomandi vefsíður.

Við munum notavafrakökur (e.cookies) til að fylgjast með vafri þínu (e. browsing), t.d. hvaða síður voru skoðaðar. Hafir þú skráð þig hjá okkur mun tölvan þín geyma auðkennda vafraköku sem sparar þér tíma, til dæmis með því að muna netfangið þitt fyrir þig. Þú getur breytt stillingum í vafranum þínum til að koma í veg fyrir að vafrakökur séu geymdar í tölvunni þinni án skýrs samþykkis þíns.

Lokaorð

Persónuverndarstefna Kleopatratours ehf er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Kleopatratours ehf áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Ný útgáfa skal auðkennd með útgáfudegi.